English
Forsíða Gallerí Um listamannin Fréttir Æviágrip
 
 

UMFJÖLLUN Í BÓKUM OG TÍMARITUM
valdar greinar o.fl.



Þóra Þórisdóttir
MYNDLIST - Kirkjulistahátíð Stórbrotinn, innblásinn og sannfærandi
Gagnrýni í Morgunblaðinu, sjá grein neðar á síðunni


Til að lesa eftirfarandi greinar - sjá dálk: About the artist á enskum hluta síðunnar

Fréttatilkynning:
Limpide og Archive - endangered waters
colette  og  Passage du Désir
París 2004

Michel Onfray -
Archive – endangered waters, Venice Biennale, 2003

Laufey Helgadóttir
50. International Art Exhibition – La Biennale di Venezia
Press Release, 2003

Dr. Dorothea van der Koelen
Paradise? – When?  1998

Grethe Grathwol
Rúrí, Article in North Information, Relativity, 1997

Gunnar J. Árnason
Time and Order , Experimental Environment - Kuopion Tienoo – 1995

Halldór Björn Runólfsson
Thoughts, 1992

Gunnar B. Kvaran
Time and Culture, 1987

_________________________________________________________________________

Þóra Þórisdóttir

Morgunblaðið 31. ágúst, 2005 -
MYNDLIST – Kirkjulistahátíð; Stórbrotinn, innblásinn og sannfærandi
Rúrí Gjörningurinn "Röddun", Hallgrímskirkju laugardaginn 27. ágúst.

RÚRÍ, borgarlistamaður Reykjavíkur og myndlistarmaður Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 2005, er í hópi okkar merkustu myndlistarmanna á síðustu áratugum, en verk hennar skara mörg svið samtímalistarinnar og miðla oftast skýrri sýn hennar á félagslegan og pólitískan veruleika í víðu tilvistarlegu samhengi. Meðal þekktustu verka Rúríar á Íslandi eru útilistarverk eins og Regnboginn við Keflavíkurflugvöll og vatnsverkið Fyssa í Grasagarðinum í Reykjavík, áhrifamiklar innsetningar á borð við Glerregn og PARADÍS? - hvenær? sem sýndar voru á Kjarvalsstöðum og ekki síst verk hennar Archive - endangered waters, framlag Íslands tilFeneyjartvíæringsins fyrir tveimur árum. Rúrí var einn af frumkvöðlum gjörningalistar á Íslandi og einn frægasti gjörningur hennar var þegar hún réðst á gullinn bíl í Austurstræti 1974 og braut hann niður með sleggju. Margir sáu líkindi með þessum gjörningi og þeim sem Móse framdi í eyðimörkinni á biblíulegum tíma þegar hann braut niður gullkálfinn. Rúrí hefur oft fundið myndlist sinni farveg í trúarlegu samhengi þar sem hin trúarlegu eða tilfinningalegu rök skipa æðra sæti en köld skynsemishyggja. Verk hennar á Kirkjulistarhátíð í Hallgrímskirkju sækir innblástur í fjallræðuna og er gert sérstaklega fyrir hátíðina og það rými sem hýsir það. Verkið felst í innsetningu í forkirkju sem ber yfirskriftina Salt jarðar og ljós heimsins og innsetningu í kirkjuskipi sem náði hápunkti í gjörningnum Röddun. Verkið er því einskonar samruni spunagjörnings og margmiðlunarinnsetningar, meðflytjendur voru Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju, Tjörvi Jóhannsson og Guðmundur Vignir Karlsson.

Í anddyri kirkjunnar gefur að líta skúlptúrverk sem samanstanda af salti á gólfi og í ferköntuðum plexíglerstöplum. Ofan á öðru verkinu eru staðsettir lóðréttir kristallar sem lýsast upp af innbyggðu ljósi. Inni í kirkjuskipinu hanga stórir hvítir dúkar og saman leiða þessi verk hugann að nokkrum hreinustu táknmyndum kristinnar trúar; salti jarðar sem má ekki dofna og ljósi heimsins sem ekki skyldi sett undir mæliker. Þessi hljóða, fallega og að því er virðist átakalausa innsetning skírskotar einnig til hreinleika hinnar nýju Jerúsalem í mynd gegnsæs gulls, hreinleika brúðarklæðisins eða hins hvíta líns réttlætis. Þegar gestir höfðu komið sér fyrir í kirkjuskipinu slokknuðu ljósin og gjörningurinn hófst með nokkuð dramatískum hætti. Myndbandsupptöku af beljandi fossum með tilheyrandi hljóðum var varpað á næfurþunn klæðin sem hanga hvert fyrir framan annað og hleypa myndinni í gegn um sig ásamt áköfu orgelspili.

Fyrstu áhrif minntu á kunnuglega leikræna sviðsetningu ákveðinna kvikmynda sem nýta sér upphafna, ofsafengna orgeltónlist í bland við beljandi rigningu og eldingar. Þessi samlíking varaði þó aðeins fyrstu tvær mínúturnar enda breyttust áherslurnar í gjörningnum, mynd og hljóð urðu að öflugu, ofsafengnu, tímalausu flæði og upplifunin nálgaðist hina sérkennilegu "sublime" tilfinningu sem maður finnur fyrir frammi fyrir stórbrotnum náttúruöflum. Táknmyndin skaraði mörg svið og mátti upplifa hugmynd um kröftuga úthellingu heilags anda, hreinsun klæðanna, læki lifandi vatns í margföldum styrkleika streyma í gegn um skynjun áhorfandans. Hið risastóra kirkjuskip virkjaðist á áhrifaríkan hátt þar sem sjónarspilið og hljóðverkið hafði áhrif á allt rýmið, það mátti sjá veggina gráta og ofsinn í vatnsflaumnum leiddi hugann að nóaflóðinu, reiði Guðs en líka ljósbroti regnbogans sem glitti í öðru hverju. Þegar gjörningnum lauk og agndofa gestir komu til veruleikans á ný þá má segja að veruleikinn hafi breyst. Hin hvítu fallegu saltverk í fordyrinu vísa einnig í söguna um saltstólpann, afstæði sjónarhornsins verður augljósara og sjóndeildarhringurinn víkkar hvort heldur sem um er að ræða trúarlegan veruleika, hugmyndir um guð eða náttúru, eða hvernig megi nálgast tiltekinn sannleika. Rúrí hefur unnið á forsendum afbyggingar í takt við heimspekilega sýn samtímans gegn ægivaldi taumlausrar frjálshyggju og tæknivaldi. Með þessu verki hefur henni tekist að byggja upp, tekist að miðla sannfæringu sinni á afgerandi hátt með skynsemi hreinnar tilfinningalegrar upplifunar.

Þóra Þórisdóttir

 

  

Súðarvogi 18 / 104 Reykjavík / sími vinnustofu 568 5506 / heima 552 8517 / tölvupóstfang: ruri.art@centrum.is