English
 
Forsíða Gallerí Um listamannin Fréttir Æviágrip
 
  Efni 1 til 4 af alls 35 

  1 2 3 4 5 6 7 8 9


 

AQUA – Silence

Fjöltækni Innsetningin var vígð í Apríl 2009. Sjö tvíhliða LED skjáir standa á mótum Munchen-borgar og umhverfis hennar, þar sem er vinsælt útivistarsvæði, og áin Isar rennur hjá.
Samtímis rennur stöðugur straumur bíla hjá verkinu í átt til miðbæjarins. Þarna mætast þéttbýli og manngert umhverfi, og náttúran sjálf. En í verkinu AQUA – Silence mætast jafnframt náttúra og tækni. Hátækni díóðuskjáir og háþróuð forrit mæta frumkröftum jarðarinnar og fegurð vatnsins í hinum fjölbreytilegu birtingarmyndum þess, allt frá dropum til jökla.

„Það liggur í augum uppi hversu spennandi það er að samtvinna ljós og list“ er haft eftir Martin Goetzeler, forstjóra Osram. Ljós-stólparnir, sem eru sérhannaðir af Osram, mynda vettvang fyrir tímabundin digital listaverk við höfuðstöðvar Osram í Munchen.

Sjö sex metra háir ljósstólpar standa á grasivöxnu svæði milli byggingarinnar sem hýsir höfuðstöðvar Osram og Mitteler Ring hraðbrautarinnar í sunnanverðri Munchen. Stólparnir eru útbúnir með díóðuskjám á báðum hliðum, bak í bak. Hönnun og hlutföll stólpanna, og afstaðan milli þeirra, kallast á við form í framhlið Osram byggingarinnar, en hana reisti Walter Henn árið 1965. Hægt er að sýna hvort heldur er kyrrar, lifandi eða gagnvirkar myndir á stópunum. Tvisvar á ári býður Osram listamanni að vinna verk sérstaklega fyrir stólpana sjö, þessi verk mynda nú sérdeild í listaverkasafni Osram.

Video of Aqua Silence by Frank Sauer



 

Smeltu á myndina til að sjá stærri mynd


 
Water Story Vocal V
2008

Gjörningurinn Vocal V er saminn í samstarfi við Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld fyrir flutning í  St. Lukas Kirche í Munchen. Meginstoð verksins er stór myndbandsvörpun af fossum og rafmagnsvirkjum sem er varpað á gegnsæ tjöld sem ná þvert yfir miðskip kirkjunnar, og hljóverk, en jafnframt flytja tónskáldið og organistar tónverk sem Hilmar Örn Hilmarsson samdi sérstaklega fyrir þetta verk. Við flutning verksins nutu þau aðstoðar organistanna Hilmars Arnar Agnarssonar og Gerd Kötter, og sérstakur gesture var Markus Zahnhausen sem lék á blokkflautur. Mikilvægur þáttur í verkinu er að leikið era f fingrum fram innan þess ramma sem höfundar setja.

kvikmyndun; Friðþjófur Helgason, Páll Steingrímsson og Rúrí
samsetning; Ó. Ragnar Halldórsson, Kvik kvikmyndagerð
lengd 40 min.
staður; St Lukas Kirche, Munchen. Water Story Vocal - V and Changing Waters by Rúrí, St. Lukaskirche Munich, curator Serafine Lindemann/ artcircolo www.overtures.de
ljósmynd; Uta Kellermann, AVISIO picture & concept



 

Smeltu á myndina til að sjá stærri mynd


 
Vocal IV.
2008

Gjörningur saminn fyrir “Sequences 2008” þegar Rúri var heiðurslistamaður hátíðarinnar. Verkið vann hún í samvinnu við Jóhann Jóhannsson tónskáld.  
Þessi fjöltæknigjörningur, er sá viðamesti til þessa í Vocal seríunni (Endangered Waters) sem Rúrí hóf að vinna með árið 2005. Verkið samanstendur af stórri myndvörpun á þunn tjöld sem Stórar myndvarpanir á næfurþunn tjöld sem nær milli veggja salarins og annarri minn á hliðarvegg, listamenn sem flytja gjörninginn birtast á gólfi salarins og á svölum meðfram báðum langveggjum.
flytjendur Jóhann Jóhannsson, hljómstjórn og gítar, Matthias Hemstock og Steingrímur Guðmundsson, ásláttur á hljóðinnsetningu, Pétur Hallgrímsson, Hilmar Jensson og S. Björn Blöndal á gítar, Guðmundur Vignir Karlsson á hljómborð og Nýlókórinn undir stjórn Harðar Bragasonar, röddun og hreyfingar, og Rúrí

kvikmyndun; Friðþjófur Helgason, Páll Steingrímsson og Rúrí
samsetning; Ó. Ragnar Halldórsson, Kvik kvikmyndagerð
lengd 39 min.
staður; Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Portið
ljósmynd; ©2008 Friðrik Örn Hjaltested



 

Smeltu á myndina til að sjá stærri mynd


 
Tilvistarleg /Existential
2008

Þó að viðfangsefni Rúríar séu oft á tíðum sótt í pólitík, þá er hún ekki síst pólitísk þegar litið er til þessarar fagurfræði sem býður áhorfandanum að upplifa veruleikann á nýjum forsendum. Hún dregur þó ekki dul á brennandi áhuga sinn á málefnum líðandi stundar í sínu nýjasta verki, Existential, frá þessu ári. Enn brýtur hún til mergjar og setur veruleikann fram í frumeindum sínum. Á nokkurs konar málmaltari getur að líta ílát sem innihalda hráolíu, maís, vatn og loft. Þarna eru saman komin undirstöðuþættir lífs á jörðu eins og málum er fyrir komið í dag. Nú er það undir áhorfendum komið hvers konar heildarmynd þeir sjá út úr þessum brotum. (Markús Þór Andrésson, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri)

efni; svartolía, maís, vatn, andrúmsloft, Plexigler, ryðfrítt stál
stærð 154 cm x 120 cm x 38 cm

sýning; StartArt, Listahátíð í Reykjavík 2008

ljósmynd; ©2008 Friðrik Örn Hjaltested



 

Smeltu á myndina til að sjá stærri mynd


 Næsta síða   Síðasta síða    Efni 1  -  4 af  35 

 

  

Súðarvogi 18 / 104 Reykjavík / sími vinnustofu 568 5506 / heima 552 8517 / tölvupóstfang: ruri.art@centrum.is