English
Forsíða Gallerí Um listamannin Fréttir Æviágrip
 
 

ruri.is

Myndlistamaðurinn Rúrí er þekkt fyrir útilistaverk eins og Regnbogann við flugstöðina í Keflavík og Fyssu í Grasagarðinum í Reykjavík, einnig innsetningar eins og Glerregn sem sýnt var vorið 2001 í Listasafni Íslands og PARADÍS? - Hvenær? sem sýnt var á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum.

Verk hennar eru hugmyndafræðilegs eðlis, en eru sett fram með margvíslegri tækni, svo sem skúlptúr, innsetningar, margmiðlunarverk, gjörningar, bókverk, kvikmyndir, video, hljóðverk, blönduð tækni tölvuvædd og gagnvirk verk.
Listaverk hennar hafa verið sýnd á alþjóðlegum vettvangi, m. a. víða í Evrópu, í Ameríku og Asíu. Hún var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2003 þar sem verk hennar vakti mjög mikla athygli og hlaut mikla umfjöllun á alþjóðlegum vettvangi.

English

Listaverk

Samband

 

 
 
 

The Nordic 3rd World Country? - Icelandic Art in Times of Crises.
Färgfabriken Norr, Östersund, Sweden

16. október - desember 2010


Sýningarverkefni sem felur í sér könnun á áhrifum efnahagshrunsins á menningarlandslagið á Íslandi, og hvort breytingar síðustu ára á Íslandi geta frætt okkur um hnattrænt ástand200
Sjá meira<<


Með viljann að verki - Tímamót áttunda áratugarins,
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir  
4. september - 7. nóvember 2010

Sýningin fjallar um myndlist íslenskra kvenna á áttunda áratugi síðustu aldar. Sýnd verða verk eftir rúmlega tuttugu íslenskar konur. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram.
Sjá meira<<

  

Súðarvogi 18 / 104 Reykjavík / sími vinnustofu 568 5506 / heima 552 8517 / tölvupóstfang: ruri.art@centrum.is